Skilmálar
Friðhelgissstefna:
Wild West Rocky hefur lög um persónuvernd að leiðarljósi í starfsemi sinni: https://www.althingi.is/lagas/153b/2018090.html
Fyrirtækið safnar ekki ónauðsynlegum upplýsingum um viðskiptavini né heldur lætur þær þriðja aðila í té.
Viðskiptaskilmálar:
Í öllum fjórhjólaferðum á vegum Wild West Rocky eru þátttakendur á eigin ábyrgð. Allir þátttakendur skuldbinda sig til að fara í einu og öllu eftir fyrirmælum leiðsögumanns. Þannig má lágmarka áhættu á hvers kyns óhöppum og/eða tjóni. Viðskiptavinir eru ábyrgir fyrir tjóni sem hlýst af óvarkárni af þeirra hálfu bæði gagnvart Wild West Rocky sem og þriðja aðila. Wild West Rocky áskilur sér rétt til að fresta eða aflýsa fyrirfram áætluðum ferðum vegna óveðurs eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna sem gætu stofnað viðskiptavinum eða starfsfólki í hættu. Ekki er hægt að draga Wild West Rocky til ábyrgðar á eignatjóni, glötuðum eigum, slysum, veikindum eða öðrum þáttum sem koma til vegna veðurs eða annarra náttúruhamfara sem Wild West Rocky hefur ekki stjórn á. Sama gildir um utanaðkomandi þætti líkt og verkföll, seinkanir og breytingar á tímaáætlun almenningssamgangna s.s. flugs og annað slíkt. Vinsamlegast kynntu þér vel afbókunarreglur hér að neðan.
Athugið að þátttakendur í ferðum á vegum Wild West Rocky eru beðnir um að leggja mat á heilsufar sitt og vera vissir um að þeir treysti sér líkamlega og andlega með í ferð. Þetta á sérstaklega við um fólk sem þjáist af stoðkerfisvanda, t.d. bakveiki og/eða barnshafandi konur.
Afbókanir
Allar afbókanir verða að berast skriflega á [email protected]. Ef afbókun berst með a.m.k. 48 klst fyrirvara fyrir brottför ferðar fæst 90% endurgreiðsla á ferðina. Ef afbókun berst innan 48 klst fyrir brottför fæst ferðin ekki endurgreidd.
Áfengi og vímuefni
Wild West Rocky áskilur sér rétt til að neita þátttakendum um að koma með í ferð sýnist starfsfólki þeir vera undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna. Undir þeim kringumstæðum er ferðin ekki endurgreidd. Sama gildir um ósæmandi og óviðunandi hegðun sem gæti ógnað lífi eða heilsu annarra þátttakenda eða starfsfólks.
Fatnaður og persónulegar eigur
Þátttakendum er ráðlagt að mæta í viðeigandi fatnaði og þá sérstaklega hentugum skóm. Wild West Rocky leggur þátttakendum til hlífðargalla, hanska og hjálma í ferðir en ekki skó. Þátttakendur bera fulla ábyrgð á persónulegum fatnaði sínum og eigum, s.s. símum og myndavélum. Wild West Rocky ber ekki ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast á persónulegum fatnaði og eigum þátttakenda.
Hámarksþyngd
Leyfileg hámarksþyngd á hverju fjórhjóli er 180 kg. Ef samanlögð heildarþyngd ökumanns og farþega er meiri en 180 kg er nauðsynlegt að bóka tvö fjórhjól.
Staðsetning
Wild West Rocky er til húsa að Hafnarstræti 24, 470 Þingeyri. Viðskiptavinir bera ábyrgð á að vera mættir 20 mínútum fyrir brottför. Ef viðskiptavinur er ekki mættur innan 30 mínútna frá boðuðum brottfarartíma áskilur Wild West Rocky sér rétt til að fella niður ferðina án endurgreiðslu. Hins vegar hvetjum við alla til að hafa samband við okkur sem allra fyrst á [email protected] eða í síma 777 6010 ef töf er fyrirséð.
Gilt ökuskírteini
Allir þeir sem ætla sér að vera ökumenn á fjórhjóli í ferð á vegum Wild West Rocky verða að hafa og geta framvísað gildu ökuskírteini. Þeir sem ætla eingöngu að vera farþegar á fjórhjóli þurfa ekki að hafa ökuréttindi. Fyrir brottför skrifa þátttakendur undir samþykkisyfirlýsingu sem kveður á um þeir hafi líkamlega og andlega heilsu til að taka þátt í ferð á vegum Wild West Rocky og að ökumenn fjórhjóla hafi gild ökuréttindi.
Nesti
Í lengri ferðir er þátttakendum ráðlagt að taka með sér létt nesti eða snarl fyrir nestispásur á leiðinni.
Sérsniðnar ferðir
Í ferðum sem sniðnar eru sérstaklega að óskum viðskiptavina þarf að greiða staðfestingargjald sem nemur 50% af kostnaði ferðar við bókun. Full greiðsla þarf svo að berast eigi síðar en fjórum vikum fyrir áætlaða ferð.
Ferðatryggingar
Við mælum sérstaklega með að þátttakendur séu með gildar ferðatryggingar.
Endurgreiðsla
Wild West Rocky ber ekki ábyrgð á gengisbreytingum gjaldmiðla. Endurgreiðsla ferðar miðast við gengi þess dags sem ferð er endurgreidd en ekki þess dags sem hún var bókuð og greidd í upphafi.
Brostnar viðskiptaforsendur
Ef viðskiptavinur telur ferð sína ekki í samræmi við væntingar m.v. uppgefnar lýsingar, telur þar með forsendur upplifunar sinnar brostnar og hugsar sér að leggja fram kæru á hendur Wild West Rocky þá þarf hún að berast eigi síðar en viku eftir að ferðin var farin.
Áhættumat
Þátttakendur í fjórhjólaferðum á vegum Wild West Rocky eru á eigin ábyrgð. Fyrir brottför skrifa þátttakendur undir samþykkisyfirlýsingu þess efnis að þeir hafi kynnt sér og samþykki ofangreinda skilmála og geri sér grein fyrir áhættu ferðar og ábyrgð sinni.
Ef einhverjar spurningar vakna varðandi ofangreinda skilmála ekki hika við að hafa samband á [email protected].
Athugið að allar ferðir er hægt að sérsníða að þínum óskum! Hafðu samband og við skipuleggjum draumaferðina þína!