HEILL DAGUR AF ÆVINTÝRUM Í STÓRBROTINNI NÁTTÚRU VESTFIRSKRA FJALLA OG FJÖRU

Sannkölluð ævintýraferð í stórbrotinni náttúru vestfirskra fjalla og fjöru yfir í Arnarfjörð, svokallaða leið “Fyrir nes” og inn í Dýrafjörð aftur. Ferðin hefst á sömu slóðum og Sandafells- og Kaldbaksleið. Upp Brekkuháls, niður á Sanda, inn Kirkjubólsdal og upp Kvennaskarð. Þaðan er haldið yfir í Arnarfjörðinn, niður Fossdalinn og út fjörðinn norðanmegin. Þar liggur leiðin um fjöruslóða í gegnum magnað Stapasund, undir Skútabjörg og áfram út í Lokinhamradal, fyrir Sléttanes og þar með inn í Dýrafjörð aftur. Í gegnum Svalvoga, Höfn og Hrafnholurnar, þar sem magnþrungið fuglabjargið slútir stórkostlega yfir vegstæðið. Áfram höldum við veginn inn bakka Keldudals, yfir Innri Ófæru, inn að Sveinseyri, gegnum Haukadal, Meðaldal, Hóla og alla leið heim í þorp.

Ferðin er einstök en að sama skapi krefjandi með tilliti til hversu löng hún er.

Heilsdagsferðin er eftir samkomulagi og best er að hafa beint samband við okkur til að bóka þessa ferð, annað hvort í síma 770 6010 eða netfangið [email protected].

Einnig er hægt er að sníða ferðir að óskum hvers og eins samkvæmt samkomulagi.

  • AVAILABILITY
    Upon request
  • DURATION
    6-8 HR
  • LEVEL
    Intermediate
  • MINIMUM AGE
    10 Years
  • MEETING POINT
    Hafnarstræti 24

Hvað er innifalið?

  • 6-8 hours on the ATVs
  • Language: English and Icelandic
  • Gear: Overalls, helmet, gloves

780134

Frá 80.000 kr.

Sjá myndir úr túrnum!